já, ég ætla segja ykkur 2 litlar sögur af geitunum..
örvar kíkti hérna í bæinn á mánudaginn og vildi endilega fara hitta vini sína upp í skóla og ekkert mál með það og svo komum við upp í skóla. Ég ákvað að leggja mig aðeins út í bíl á meðan því ég var svooo þreytt að ég bara gat ekki keyrt sko. Svo lagði ég sætið aftur og svoleiðis steinsofnaði. Það var notla þvílíkt gott veður þannig að allir gluggarnir voru opnir. Hvað haldiði að hafi mætt inn í bílinn.
Haldiði að það hafi ekki verið eitt stykki geitungur

og hann kom í þokkabót inn mín megin. þannig að ég hrökk af stað og út um hurðina framm í megin og hljóp inn í skólann í sjokki.
svo vorum við á rúntinum í dag, ég, una og Karen og vorum að fara út af bílastæðinu hjá MS og á næstu ljós. Svo kom rautt og við stoppuðum. auðvitað með alla gluggana opna í þessu dýrindis veðri, svo vorum við að fylgjast með e-m bíl þarna og það kom grænt og við misstum af því ljósi (enginn bíll fyrir aftan) svo þegar rauða ljósið var, hrúguðust bílarnir í röð á eftir mér þar sem ég var fremst í fararbroddi. Haldiði að vinur okkar geitungurinn hafi ekki kíkt í heimsókn inn í bílinn og við hlupum allar öskrandi út. eða allavega þær tvær því ég þurfti að fara út framm í megin, aftur!!! svo auðvitað kom grænt og fólk að horfa á okkur eins og við værum þroskaheftar því ekki þorðum við inn í bílinn að færa hann með geitung með okkur þannig að við vorum e-ð bara að reyna fá hann út og fólk var farið að öskra á okkur "hey það er grænt" en svo auðvitað var ég sú hugrakka og settist upp í bílinn og ætlaði að færa hann, en þá fór hann út, sem betur fer.
svona voru nú þessar 2 sögur af geitungunum sem ég ætlaði að deila með ykkur og vona að ykkur hafi þótt gaman af
eins og örvar sagði alltaf á gamla blogginu sínu
Olla "is out"