Jæja, þar sem maður er lenntur á klakann finnst mér að maður ætti að koma með smá blogg.
Eins og flestir vita vorum ég, Örvar og Una í Tyrklandi í útskriftarferðinni minni.
Ferðin byrjaði á limmu upp á völl og þar tók við 5 og 1/2 tíma flug til Dalaman í Tyrklandi. Þegar við lenntum héldum við að við myndum deyja úr hita en allavega fórum við upp í rútu og okkur var sagt að rúta tæki frá 5 tímum upp í 8.. nei nei okkar ferð var 9 tímar í rútu!! klikkun sko.. Það vildi svo skemmtilega til að flestir í rútunni voru að drekka og það var alltaf verið að stoppa til að fara pissa.
Fyrsta daginn okkar var 45°C takk fyrir! sko það gjörsamlega fossaði af manni svitinn.
ég nenni nú ekkert að segja í smáatriðum hvernig þetta var. En allavega það sem við gerðum var að fara í siglingu með öllum og það var geggjað gaman bara. Svo fórum við á jetski, og það er e-ð sem maður á pottþétt eftir að gera aftur sko

herðu, svo skelltum við okkur í köfun.. bára, hérna verður maður að nota þín orð "díese kræst súperstar"
ég var sko geggjað spennt að fara kafa og sjá nemó fiska og svona, svo er maður komin með kútinn á bakið, og draslið upp í sig og allt annað tilheyrandi, svo hoppa ég útí og fæ bara sjokk. Það er svo ógeðslega asnalegt að anda ofan í vatni að þetta bara eitt það asnalegasta sem ég hef gert. Svo áttum við að fara kafa. Kéllan komst ekki einu sinni niður á botn sem var um 4-6 metrar ég fékk svo mikla innilokunarkennd

fólk sem er með innilokunarkennd, eeekki fara í köfun.
svo gerðum við fullt af skemmtilegum hlutum.
það var voða lítið um djamm í þessari ferð enda þar sem ég sat í samfleitt 14 og hálfan tíma þá bara skemmdist bakið mitt sem þýddi að ég gat ekkert farið út að djamma
svo virðist samt að enginn hafi skilð það..

en ég er með eitt hérna asnalegt sem ég verð að segja ykkur. þegar við fórum í köfunina, þá notla gat ég ekkert verið ofan í því ég var með mína innilokunarkennd, og ákvað bara að fara í sólbað á meðan. Við vorum á svona pínu litlu skipi og fremst á skipinu eru alltaf dínur svo fólk geti farið í sólbað. Ég tek handklæðið mitt og skelli því á dínuna og legst en svo þegar ég lét andlitið niður fór það á dínuna og haldðiði ekki að kéllan hafi bara skaðbrunnið á hægri kinninni :/ jebbs, ég fékk blöðru á kinnina og núna er hún að flagna þannig að ég er frekar mikið mess í framan plús það að nefið á mér er líka ða flagna.. svaka fjör

en svo tók heimleiðin við, sem var bara 7 tímar í rútu og 6 og hálfur í flugvél.. og núna er ég bara komin heeeeim á Sigló..
svo byrjar skólinn bara á þriðjudaginn


mann langar ekkert frá Sigló til Borg Óttans.. frekar lame :/
en jebs.. þetta voru svona helstu atriðin í þessari ferð, ég ætla skella mér niður í apótek og kaupa mér hóstamikstúru..
kv. Olla