Small

ÁH,BDÞ,US,ÓS,SRJ

23.05.2008 17:19:37 / BáraDögg

2.vikur babe

Jæja það eru bara 2 vikur í besta frí í heimi! 

Ókei, þá er allt að gerast hjá mér. Eða þannig ég er bara að bíða eftir að stelpurnar komi og svona. En já ég var að heyra frá tryggingunum og ég mun líklegast fá allt greitt því sem var stolið frá mér. Ég er svo ánægð með það því mig langar svo í myndavélina mína!

En já svo vil ég fá að heyra eitt frá ykkur stelpur? Viljið þið fara til Algarve í 3 daga eða hvað?Ég þarf nefnilega að biðja um leyfi frá AFS til að fara ég var að spá ef þið eruð til í að fara semsagt 10 – 13 júní. ?  það er á virkum degi og það er alltaf djamm í Algarve alla daga þannig að það skiptir ekki máli, þá er líka ekki svo margir í vatnsrennibrautagarðinum og svona ;)

 

En já svo er ég búin að ákveða að fara til Cascais á einn bar og kynna ykkur fyrir æðislegasta fólki í heimi. Þau vilja hitta ykkur. Þau elska ísland og allt sem tengist því.

http://www.youtube.com/hemingwaycascais 
En já eftir að þið stelpurnar farið heim þá fara Carla, António og Ana til útlanda þannig að ég verð ein heima seinustu vikuna mína með grýlu og leppalúða ég var rosalega fúl þegar ég heyrði þetta en ég er búin að ákveða að hafa þetta bara sem næst bestu vikuna mína hérna í portúgal, því að bestu vikurnar verða náttúrulega þegar þið komið ;) hehe
En já ég er búi að ákveða að fara í bakpokaferðalag um Portúgal langar svo að skoða Norður Portúgal, en meina kannski endar maður í Algarve eða eitthvað. Kemur bara í ljós, örugglega ógeðslega gaman að gista á ódýrum hótelum eða bara á lestarstöðinni, verður hvort sem er svo heitt  úti að það skiptir ekki svo miklu máli hvar maður sefur.Mig hefur alltaf langað að gera eitthvað svona, þannig að held að þetta sé bara besti tíminn til að gera þetta...

 

Og yfir í annað

Til hamingju með daginn Gunni, Vona að þú eigir góðan dag :*
....

Ég talaði við Gabríel, Örn og Halldór í næstum því 3 tíma á miðvikudaginn ógeðslega skemmtilegir 3 tímar, sjaldan helgið jafn mikið! Steiktir Strákar!!
og við náðum svona nokkurn veginn að plana dagsetningu á grillpartíinu mínu sem ég ætla að halda og það er 17 júlí ekki júní eins og sumir voru að hugsa útí ahaha eða 18 júlí.Þannig að allir þurfa að vera  í landi eða á sigló! Þannig að takið þessa helgi frá!Þetta verður pínu bekkjar hittingur og pungsahittingur og allt það J 



Bára Biður að heilsa
p.s aðeins 36 dagar í stóra daginn!
munið þegar ég sagði, bara 5 mánuðir í mig!

Gunni skrifaði
hehe takk bára mín :* en ég mæti pottþétt í þetta grill :D
gabe skrifaði
þú og þinn júní sko:p rugluð ;)
Álfhildur skrifaði
ég get víst ekki mætt!
ég verð að spila 18 júlí ....
Örn skrifaði
ÞÚ ert steikt..
steffy.. skrifaði
wuhu til í grill og hitting þegar þu kemur heim og já vá ég man þegar þú sagðir að það væru 5 manuðir, núna er Þetta bara að bresta a ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 63567
Könnun
Ætlaru til útlanda í sumar?